Conde Nast Traveller valdi So/Sotogrande heilsu- og Sport hótel ársins 2023.
So/Sotogrande sem er hluti af Accor keðjunni. Accor er frönsk keðja sem hefur verið að sækja í sig veðrið undanfarin ár með kaupum og sameiningum við aðrar keðjur. Keðja byrjaði sem Novotel árið 1967, en nú eru 6.000 hótel í keðjunni og mörg undirmerki. Árið 2021 klára þeir að sameina Accor við Ennismore (So, Gleneagles, Delano, 25 Hours, Hoxton, Mama Shelter, Mondrian og fl.)
Hótelinu fylgja 36 holur, Alto völurinn Golf (18 holur) og einn besti völlur svæðisins La Reserva (18 holur) sem er 13 besti völlur Spánar.
Annað sem hægt er að gera á svæðinu fyrir utan golf er að hjóla um fjalllendi svæðisins eða í kringum smábátahöfnina í Sotogrande, spila tennis og padel svo eitthvað sé nefnt. Perla hótelsins er líklega heilsulindin sem er er 2.800 fm
Veitingastaðir hótelsins eru 5 talsins og virkilega góðir. 50% af viðskiptavinum veitingastaðina eru innfæddir frá Gíbraltar, Marbella og Sotogrande. Það segir mikið um gæði þeirra.
152 herbergi (þar af 32 svítur). Flest herbergin eru með svölum.

























