Monte Rei Golf & Country Club er fimm stjörnu golfsvæði staðsett á um 1.000 ekra landsvæði í austurhluta Algarve í Portúgal. Í stað hefðbundins hótels þá býður dvalarstaðurinn upp á gistingu í rúmgóðum íbúðum við klúbbhúsið og lúxusvillum með einkasundlaugum. Gestir hafa aðgang að fyrsta flokks hótelþjónustu, heilsulind, líkamsrækt og tennisvöllum, ásamt framúrskarandi veitingastöðum þar sem matreiðslunni er stjórnað af yfirkokknum André Simão
Svæðið í kring einkennist af óspilltri náttúru og kyrrð þar sem dvalarstaðurinn liggur í hæðóttu landslagi á milli Serra do Caldeirão fjallanna í norðri og Atlantshafsins í suðri. Þetta er mun rólegri og minna byggður hluti af Algarve en vestursvæðið, sem gefur staðnum einstakan sveitasjarma. Stutt er í sögulega og fallega strandbæi eins og Tavira, auk þess sem fallegar, hvítar sandstrendur og náttúruverndarsvæðið Ria Formosa eru í þægilegri akstursfjarlægð.
Golfvöllurinn
Perlan/perlurnar á svæðinu er golfvöllurinn og allt sem tengist honum. Norður völlurinn (North Course) opnaði aftur á ný í september 2026 eftir umfangsmiklar og metnaðarfullar endurbætur. Völlurinn, sem er hannaður af goðsögninni Jack Nicklaus, var lokaður í fimm til sex mánuði á meðan ráðist var í heildarviðhald og uppfærslur til að tryggja gæði hans til næstu áratuga. Í endurbótunum fólst meðal annars að flatir (greens) og teigar voru endurbyggðir og stækkaðir, glompur endurnýjaðar og stígar fyrir golfbíla endurlagðir. Samhliða var ráðist í mikilvægar neðanjarðarframkvæmdir þar sem vökvunarkerfi og dælustöðvar vallarins voru nútímavæddar til að stórbæta vatnsnýtingu og sjálfbærni. Markmiðið með breytingunum var ekki að breyta hönnuninni sjálfri, heldur að færa ástand vallarins aftur í það hæsta gæðastig sem upphaflega var lagt upp með og mæta krefjandi loftslagsaðstæðum á Algarve-svæðinu
Innifalið
Innifalið:
7 nætur í double room með morgunverði
5 golfhringir á Monte Rei
Flug með Icelandair til Faro (flutningur á golfsetti, 23 kg innrituð taska, handfarangur (10 kg) og einn hlutur til persónulegra nota
Aukalega:
Hálft fæði 50€ per person
Tapas Lunch (drinks not included) – 48€ per person
36hdc for ladies
28hdc for gentlemen
Annað
Það er ekkert mál að bóka kennslu þarna. Það má segja að þetta svæði er fullkomið fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í golfinu og vilja fá kennslu við heimsklassa aðstæður.