Lingfield Park Marriott - London

Verð frá kr. 99.000 á mann í tvíbýli

Lingfield Park Marriot Hotel & Country Club er frábær áfangastaður fyrir kylfinga. Hótelið opnaði í maí 2010 og samhliða því var tekið í notkun nýtt klúbbhús ásamt mjög góðu æfingasvæði. Um er að ræða 4 stjörnu hótel, með mjög góðum 18 holu golfvelli á landareigninni. Völlurinn er frá árinu 1987 og liggur á 200 ekru landareign í Surrey.

„Þá erum við komnar heim eftir frábæra ferð á Lingfield Park. Við vorum mjög ánægðar með allt: Fínt hótel, starfsfólkið 100% hjálpsamt og góður matur. Hótelið fær A+ fyrir matinn. Golfvöllurinn góður og veðrið gott. Það ber að þakka sérstaklega fyrir það“
Vigdís Sverrisdóttir
Allt var alveg frábært, hótelið golfið veðrið og maturinn. Ég mæli eindregið með þessum stað. Kær kveðja og bestu þakkir
Kristín R. Úlfljótsdóttir , Golfbúðin Hfj.
Vorum að koma frá Marriot Lingfield Park þar sem við spiluðum um páskanna. Það sem kom mest á óvart hvað þessi völlur er skemmtilegur og þjónustann til fyrirmyndar það er öruggt að þennann völl verður maður að spila aftur. Eins og venjulega hjá ykkur var gistiaðstaðan og móttökur til fyrirmyndar.
Guðmundur Óskar Hauksson
Ferðin hjá okkur hjónum á Lingfield Park Marriott var frábær. Allt stóðst, fínt hótel, góður matur og völlurinn frábær en nokkuð erfiður
Greta og Steinar Petersen
Lingfield Park Marriott eru gæði og þægindi uppmáluð, varla lentur fyrr en komin á teig á þessum skemtilega skógarvelli. Flott herbergi og mikil stemning að sjá veðreiðar eftir hring, eitthvað sem allir þurfa að upplifa.
Gunnnar Gunnarsson, GKG
Lingfield Park kom mér virkilega á óvart, Að vera 2 mínútur útá teig eða æfingasvæði er "priceless" fyrir pga golfkennara. Frábær 18 holu skógarvöllur í krefjandi landslagi. Æfingsvæðið er virkilega flott, hægt að æfa öll högginn fyrir hring. Aðstaðan og þjónustan á hótelinu er framúrskarandi og andrúmsloftið afslappað. Mæli með þessum velli!
Gunnlaugur Elsuson, PGA kennari

Völlurinn er fjölbreyttur, par 72 og er rúmlega 5900 metrar að lengd. Talsverður munur er á fremstu og öftustu teigum, til að mæta þörfum golfara af öllum getustigum. Í þrjú ár í röð hefur Surrey PGA Open verði haldið á vellinum, síðast í ágúst 2011. Aftan við hótelið er einnig veðhlaupabraut, þar sem haldnar eru veðreiðar nánast alla laugardaga árið um kring. Veðhlaupabrautin er sú eina á London svæðinu, sem er nýtt allt árið um kring og því eru mjög skemmtilegir viðburðir þar, sem trekkja að og skapast skemmtileg stemning. Þetta býður upp á ýmsa möguleika, t.d. fyrir hópa. Auðvelt er að fara inn til London með lest, sem gengur frá Lingfield (1,1 km) og tekur um 1 klst. alla leið inn í miðborg London.

Dagsetningar

08 ágú 2024
08 ágú til 11 ágú
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
15 ágú 2024
15 ágú til 18 ágú
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
22 ágú 2024
22 ágú til 25 ágú
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
29 ágú 2024
29 ágú til 01 sep
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
05 sep 2024
05 sep til 08 sep
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
12 sep 2024
12 sep til 15 sep
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
19 sep 2024
19 sep til 22 sep
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
26 sep 2024
26 sep til 29 sep
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
03 okt 2024
03 okt til 06 okt
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
10 okt 2024
10 okt til 13 okt
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
17 okt 2024
17 okt til 20 okt
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
24 okt 2024
24 okt til 27 okt
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
31 okt 2024
31 okt til 03 nóv
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
07 nóv 2024
07 nóv til 10 nóv
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
03 apr 2025
03 apr til 06 apr
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
10 apr 2025
10 apr til 13 apr
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
17 apr 2025
17 apr til 20 apr
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
24 apr 2025
24 apr til 27 apr
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
01 maí 2025
01 maí til 04 maí
kr. 99.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
08 maí 2025
08 maí til 11 maí
kr. 109.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
15 maí 2025
15 maí til 18 maí
kr. 109.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
22 maí 2025
22 maí til 25 maí
kr. 109.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
29 maí 2025
29 maí til 01 jún
kr. 109.000 á mann í tvíbýli (án flugs)
05 jún 2025
05 jún til 08 jún
kr. 109.000 á mann í tvíbýli (án flugs)

Innifalið

Gisting í 3 nætur með morgunverði, kvöldverði, 4×18 holur, aðgengi að heilsulind og líkamsræktarstöð hótelsins.

Aukagjald fyrir einbýli

kr. 12.500,- á dag

Annað:

Extra rounds –  £30.00

Buggie 18 Holes – £30.00

Buggie All Day – £50.00

E-Trolly – £15.00

Pull Trolley – £6.00

Skilmálar

Staðfestingargjald er 50% af heildarverði. Hægt er að fá staðfestingargjaldið endurgreitt innan 7 daga frá bókun, annars óendurkræft að öllu leyti. Eftirstöðvar skuldfærast 6 vikum fyrir brottför. Flugvallaskattar geta breyst án fyrirvara til hækkunar/lækkunar. Tilboðið miðast við Visa gengi 18.01.2023 GBP 182.