Netklúbbur  |  Ferðaskilmálar  |  
Mynd
Netklúbbur

Nafn:

Netfang:

Skrá mig Afskrá mig
Ferðaskrifstofa GB Ferðir á Facebook
ASPEN/SNOWMASS

home06_amfireworks.jpgpicture-003.jpgaspen-682.jpg

Aspen/Snowmass  er líklega þekktasta skíðasvæði Norður Ameríku, ekki síst vegna þess að ríka og fræga fólkið heldur þar gjarnan til.  Hitt er þó mikilvægara að í Aspen eru bestu fjöll sem að völ er á og flóra veitingastaða, verslana og listagallería er með ólíkindum.  Í dag eru yfir 120 veitingastaðir í bænum. Við höfum bætt við nýju hóteli í Aspen, Limelight Lodge, sem er fyrsta nýja hótelið í Aspen um áraraðir.

bokanuna_smblue.jpg

  • Limelight Lodge:  Nýtt og glæsilegt hótel í miðbæ Aspen.  Hótelið er á besta stað í bænum í göngufæri frá verslunum, veitingastöðum, Aspen Mountain, Wheeler Opera House og fleira.  Hönnun hótelsins er einstaklega vel heppnuð.  Hótelið er byggt í kringum hótelgarðinn sem inniheldur upphitaða sundlaug og heita potta.  Mörg herbergin hafa svalir og verandir út að sundlaugagarðinum. Anddyri er stórt og rúmgott.  Innan af því er stór setustofa "lounge" þar sem morgunverðurinn er borinn fram.  Í eftirmiðdaginn gefst gestum okkar kostur á að slaka á við arineld og eftirmiðdagshressingu.  Arinstæðið er hlaðið í nokkurra metra hæð og þaðan er útsýni yfir fjöllin.  

skoda_myndasyrpu.gif

map.gifSmelltu á mynd til að fá stærra kort

 

Dagsetningar 2010:dotted_line.gif

  • 11. -22.febrúar (11 nætur) - uppselt
  • 26.febrúar-9.mars (11 nætur) - uppselt
  • 12.-23.mars (11 nætur) - uppselt

Flugáætlun:dotted_line.gif

Útleið:
FI631 KEFBOS 17.00-17.50 (flugtími 05:50)
Ein nótt í Boston
UA339 BOSDEN 07.45-10.35
UA6563 DENASE 12.40-1300

Heimleið:
UA6742 ASEDEN 08.10-09.07
UA584  DENBOS 10.20-16.09
FI630 BOSKEF 20.35-06.40(+1 DAGUR) (flugtími 6:05)

Verð: dotted_line.gif

  • frá kr. 380.000 á mann í tvíbýli.

Innifalið: Flug með Icelandair til Boston ásamt flugvallasköttum og eldsneytisgjaldi, ein nótt í Boston á Royal Sonesta Hotel,  flug frá Boston til Aspen með flugvallasköttum og eldsneytisgjaldi, gisting með morgunverði og aðgengi að heilsulind og líkamsræktarstöð hótelsins. 

Skíðapassar:

Fullorðnir: 9 dagar kr. 87.000 - 10 dagar: kr. 97.000 (kr. 20.000 afsláttur sé bókað fyrir 15.nóvember)
13-17 ára: 9 dagar kr. 62.000 - 10 dagar: kr. 70.000 á mann (kr. 10.000 afsláttur sé bókað fyrir 15.nóvember)
7-12 ára: 9 dagar kr. 51.000 - 10 dagar: kr. 58.000 á mann (kr. 10.000 afsláttur sé bókað fyrir 15.nóvember)
6 ára og yngri: frítt

Skíðapassinn gildir í Aspen Mountain, Aspen Highlands, Buttermilk og Snowmass.


Staðsetning: dotted_line.gif


Grand Sonesta Hotel Boston (12 mín frá Logan flugvelli)
40 Edwin Land Boulevard
Cambridge, MA, USA 02142


Limelight Lodge Aspen (10 mín frá Aspen flugvelli)
355 S. Monarch St.
Aspen, Colorado 81611

Skilmálar:dotted_line.gif

*Staðfestingargjald er 50% af lokaverði og greiðist við bókun. Hægt er að fá staðfestingargjaldið endurgreitt innan 7 daga frá bókun, annars óendurkræft að öllu leyti.  Eftirstöðvar greiðast 8 vikum fyrir brottför.  Barnaafsáttur miðast við 11 ára og yngri. Ungabörn 0-24 mánaða greiða einungis flugvallaskatta. Flugvallaskattar geta breyst án fyrirvara til hækkunar/lækkunar.  Tilboðið miðast við gengi USD 124 28.október 2009.   Engir samningar gilda á milli UA og Icelandair. Þess vegna eru flugmiðarnir gefnir út sem tveir aðskildir miðar. Ferðaskrifstofan ber enga ábyrgð á ferðatöf sem hún hefur ekki stjórn á.

 

 

Áfangastaðir

Donnington Grove (40 mín frá Heathrow) er að okkar mati best geymda leyndarmálið á Londonsvæðinu um þessar mundir. Golfvöllurinn er í einu orði sagt frábær upplifun. Hann er 6.340 metrar að lengt frá öftustu teigum, par 72. Hótelið er gamall herragarðu

Skoða nánar
Áfangastaðir

The Springs er lítið og notalegt golfhótel í Oxfordshire. Hótelið og golfvöllurinn liggja við Thames ánna.

Skoða nánar
bowood